|
Velkomin |
|
|
ÁGÚSTA SIGRÚN ÁGÚSTSDÓTTIR 
VELKOMIN Í HEIMSÓKN WELCOME BEN VENUTI
Söngur er mitt fag ég hef yndi af alls kyns tónlist. Ég fæst við það að syngja við brúðkaup og við ýmis önnur tækifæri. Ef þú ert í slíkum hugleiðingum hef ég tekið saman lagalista.
Árið 2001 gaf ég út geisladisk með dægurtónlist eftir föður minn, Ágúst Pétursson. Diskurinn heitir HITTUMST HEIL og nýverið kom út nótnabók með 20 laga hans.
Ég er leiðsögumaður ferðamanna með tungumálin ítölsku og ensku en ég hef líka meiraprófsréttindi og get því skottast með ferðamenn um landið sem "ökurati".
Ég hef unnið við fararstjórn nokkur sumur á Ítalíu og Króatíu fyrir Heimsferðir.
JetX nýtur vinnukrafta minna núna. Ég vinn þar sem "librarian" og hef umsjón með handbókum og skjalavistun.
Þar fyrir utan hef ég tekið að mér að viðhalda ítölsku vefsíðunni hjá Luxury Adventures.
Sem aukabúgrein stundum við hjónaleysin svo tilbúning heimasíðu fyrir útlendinga sem hafa áhuga á að trúlofa eða gifta sig á Íslandi eða koma hingað í brúðkaupsferð. Heimasíðan heitir www.icelandluxurywedding.com
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
|
|